Metnaðarlaust klúður og sjónhverfingar

Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi.

Þessi samantekt er viðbragð mitt við yfirlýsingum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Hjördísar Ýrar Johnson, sem birtist í Morgunblaðinu 12. janúar s.l. Þar heldur hún því fram að skipulagstillaga á reit 13 sé unnin í samráði við íbúa á Kársnesi og að þeirri aðferðarfræði hafi Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn beitt í skipulagsmálum í gegnum árin. Það eru í besta falli sjónhverfingar.

Ný skipulagstillaga á reit 13 er slys

Haldinn var fjölmennur samráðsfundur 2015 þar sem íbúar lögðu ómælda vinnu í að móta með okkur hverfisskipulag á Kársnesinu. Þar sem minn flokkur bar ábyrgð á skipulagsmálum á þeim tíma þá bárum við ábyrgð á að deiliskipulagslýsing fyrir þróunarsvæðið yrði til. Tillagan, sem var samþykkt í bæjarstjórn 2016, byggði á raunverulegu samráði við íbúa árið áður. Markmið hennar var að efla svæðið með aukinni íbúðabyggð í bland við verslun og þjónustu og með áherslu á vistvæna samgöngumáta. Sú lýsing innihélt atvinnustarfsemi á jarðhæðum bygginga, áherslu á opin svæði, torg og gróður, að höfnin yrði s.k. geðprýðishöfn þar sem verslanir, veitingahús og kaffihús fengju notið sín auk ferðatengdrar starfsemi. Íbúar sem tóku þátt í samráðinu lögðu mikla áherslu á að ef þétta ætti byggðina yrði að tryggja hæfilega blöndu af íbúðum, grænum svæðum og að þjónustustigið yrði í samræmi við uppbygginguna. Listinn er lengri en í hugmyndafræðinni endurspeglast flæði og virkni 20 mínútna hverfa þar sem íbúðir, vinnustaðir og þjónusta spila saman sem ein heild þar sem nánasta umhverfi mótast af daglegum þörfum fólks.

Á árinu 2022, þegar fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks höfðu stjórnað skipulagsmálum frá 2018 og höfðu varið fjórum árum í deilur við íbúa, var lögð fram skipulagstillaga til samþykktar sem hundsar með öllu niðurstöður samráðsins sem raunverulega fór fram 2015. Tillagan sem samþykkt var er ein af fjórum tillögum sem fjárfestar lögðu til. Tillögur sem allar innihéldu verulega aukið byggingamagn á kostnað skjólríkra grænna svæða, verslunar og þjónustu. Þessu hef ég mótmælt harðlega og hlotið bágt fyrir. Það sem eftir situr af fermetrum sem áður voru ætlaðar undir þjónustu, veitinga- og kaffihús eru rúmlega 200 fermetrar fyrir mögulega ísbúð. Græn svæði hafa vikið fyrir óásættanlegum íbúðamassa. Fermetrum fyrir íbúðarhúsnæði hefur fjölgað úr 14.500 í 18.800. Viðbótin jafngildir tæplega fimmtíu 90fm íbúðum og er nálægt stærð nýlegs 11 hæða fjölbýlishúss í Bæjarlind. Auðvitað er hæð byggðarinnar á reit 13 miklu minni svo þéttingin á kostnað grænna svæða er komin langt út fyrir öll sársaukamörk. Menn hafa þó gripið til þess örþrifaráðs að fækka íbúðum en stækka þær, sem aftur er andstætt áformum um að byggja litlar íbúðir á svæðinu. Hvort það er gert til að kasta ryki í augu fólks veit ég ekki en ég ætla að giska á að íbúar sjái vel í gegnum slíkar sjónhverfingar.

Sjokkmeðferðir og metnaðarlaust klúður

Sjokkmeðferðir Sjálfstæðisflokksins virka ekki vel á mig. Þær ganga út á að fyrstu hugmyndir séu sjokkerandi dónalegar og þannig sé svigrúm til að gefa eitthvað eftir en ná samt sínu fram. Á reit 13 er byggingarmagn enn óhæfilega mikið og búið að gjörbreyta virkni og ásýnd hverfisins. Hún er tæplega í samræmi við nýsamþykkta húsnæðisáætlun, ekki í samræmi við deiliskipulagslýsinguna og mjög langt frá óskum og væntingum íbúa sem lögðu í ómælda vinnu með okkur við gerð hverfisáætlunar. Það er með öllu á huldu hvert skipulag nærþjónustunnar er. Óljósar hugmyndir um ísbúð, veitingahús á nærliggjandi reit 8 og kannski matvöruverslun úti við nýja brú er það eina sem við getum dregið upp úr meirihlutanum. Það er engin heil hugsun í neinu og óásættanlegt að nærst stærsta sveitarfélag landsins skuli ekki sýna meiri fagmennsku við að styðja við þróun samfélagsins og bjóða upp á sjónhverfingar í stað skýrra áætlana. Meirihlutakórinn sem syngur undir einsöng fjárfesta, á kostnað íbúa og tækifæra til að búa til mannvæn hverfi og treysta mannlíf, á hinn vafasama heiður að því metnaðarlausa klúðri.

Það hefði verið gullið tækifæri fyrir íbúa Kópavogs að taka reit 13, smábátahöfnina og hafnarsvæðið og skipuleggja mannvænt svæði fyrir blómlegt mannlíf. Það hefði ekki einu sinni þurf að raska ró fjárfesta því Kópavogsbær mun eiga um 40% af reitnum. En meirihlutinn hefur aðrar hugmyndir á óljósum forsendum.

Málið er þó í raun stærra og varðar fleiri reiti en þann nr. 13. Leigufélagið sem heldur á reit 8, sem stendur næst reit 13, sendi inn nýja tillögu nýverið án þess að hún raskaði ró meirihlutans sem tók við henni af óútskýrðu áhugaleysi. Þar var búið að gera breytingar á skipulaginu þannig að gistiheimili voru komin í stað verslunar og þjónustu í tæplega 1000 fermetrum á aðkomuhæðum. Enn á ný mótmælti ég og krafðist breytinga til fyrra horfs og þannig var komið í veg fyrir skipulagsslys meirihlutans á þeim reit.

Vond vinnubrögð og sjónhverfingar

Hjördís Ýr, núverandi formaður skipulagsráðs, mætti kynna sér niðurstöður samráðsins sem raunverulega átti sér stað 2015 og bera saman við skipulagstillöguna sem hún og hennar fólk ber nú ábyrgð á, áður en hún teiknar upp fleiri sjónhverfingar. Það er líka góð regla að kalla hlutina réttum nöfnum því einhliða upplýsingafundir eru ekki samráðsfundir. Hér er góðri vinnu, traustu samráði og þekkingu fleygt og sóað fyrir ný áform og aðra hagsmuni af hreinu metnaðar- og áhugaleysi, íbúum til mikillar hrellingar því þannig er ekki hægt að treysta að ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar, standi. Íbúar eiga ekki að þurfa að hafa bæjarfulltrúana sína í gjörgæslu.

Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn ákvað að mynda meirihluta í Kópavogi með Framsókn hef ég setið í minnihluta með það eina verkfæri að mótmæla ítrekað tillögum sem taka ekki mið af neinu nema fjárhagslegum hagsmunum fjárfesta. Mótmæli mín hafa leitt til bréfaskrifta fjárfesta sem ekki er hægt að túlka öðruvísi en atlaga að því að þagga niður i mér. Útúrsnúningur og þvættingur hefur verið sendur út og suður til að sverta mína persónu og mína vinnu. Samkór meirihlutans í Kópvogi syngur svo undir í því verki. Það er alveg ljóst að fullyrðingar núverandi formanns skipulagsráðs um að skipulagið fyrir reit 13 sé byggt á hugmyndavinnu með íbúum og í samráði við þá eru ekki sannleikanum samkvæmar. Tillagan er fjárfesta, þeirra sem hafa fjárhagslega hagsmuni af því að byggja sem mest og eyðileggja þannig möguleika á lífvænlegu hverfi sem gæti iðað af mannlífi ef meirihlutinn stæði í lappirnar.

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

Pétur Hrafn Sigurðsson
Daði Rafnsson
Fannborg 7-9
Snyrtistofa Jónu
Fannborg heilsugæsla
margretfridriksxd
1-16
afmaeli
Teitur Atlason