Ný sundlaug í Fossvogsdal

Sundsprettur í sundlaug Kópavogs. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Sundsprettur í sundlaug Kópavogs. Fyrirhuguð hönnunarsamkeppni Fossvogslaugar verður unnin í samráði við Arkitektafélag Íslands. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.

Dagur B. Eggertsson borgastjóri Reykjavíkur og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, leggja til að samþykkt verði að haldin verði hönnunar- og skipulagssamkeppni um sundlaug í Fossvogsdal. Tillaga þar að lútandi var lögð fyrir borgarráð Reykjavíkur og bæjarráð Kópavogs í morgun. 

Fossvogslaug myndi bætast í flóru þeirra almenningssundlauga sem þegar eru starfræktar á höfuðborgarsvæðinu en áhersla verður lögð á umhverfisvæna hönnun og framkvæmd sundlaugarinnar með vistvænum útfærslum, þar með talið græna fjármögnum byggingarinnar, að því er segir í tilkynningu.

Aðkoma að Fossvogslaug verður einkum fyrir gangandi og hjólandi og verða bílastæði laugarinnar einungis fyrir fatlað fólk og fyrir aðföng. Þá verður sundlaugin nýtt fyrir skólasund nærliggjandi skóla í Reykjavík og Kópavogi. 

Bæjarstjóri  og borgarstjóri hafa fundað með yfirmönnum skipulags- og umhverfismála í sveitarfélögunum um staðsetningu laugarinnar sem verður sameiginlegt verkefni Kópavogs og Reykjavíkur. Bæjarstjórn Kópavogs mun taka málið fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar, þriðjudaginn 23.mars.

Bent er á á að aðstæður í dag styðja vel við græna hugmyndafræði sundlaugarinnar, hjólreiðar hafa aukist verulega og unnið er að betri almenningssamgöngum með Borgarlínu. Gera má því ráð fyrir að sundlaugin verði vinsæl hjá útivistarfólki, auk þeirra sem búa í nærliggjandi hverfum við Fossvogsdal.

Fyrirhuguð hönnunarsamkeppni verður unnin í samráði við Arkitektafélag Íslands. 

Sundlaug í göngu- eða hjólafjarlægð

„Sundlaug í Fossvogsdal er spennandi hugmynd og ég á von á því að bæjarstjórn Kópavogs taki tillögunni vel,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. „Hugmyndin er ekki ný af nálinni og því tímabært að stíga næstu skref. Grænar áherslur eru í takt við tímann og sundlaugin  yrði áreiðanlega mjög vinsæl meðal útivistarfólks og auka lífsgæði íbúa í nágrenninu fyrir utan að vera nauðsynleg viðbót fyrir skólasund.“ 

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, tekur í sama streng og segir gríðarlega jákvætt að taka þessi sameiginlegu skref varðandi útfærslu og hönnun Fossvogslaugar í hjarta Fossvogsdals. „Þetta er líka dæmi um tímamótasamstarf sveitarfélaganna Reykjavíkur og Kópavogs. Engin dæmi eru um sameiginlega byggingu og rekstur sundlauga á landinu. Ég er sannfærður um að þetta geti orðið algjör perla. Stefnan er að allir Reykjavíkingar búi í auðveldu göngu- eða hjólafæri frá almenningssundlaug. Það gildir alls staðar með þeirri undantekningu að það á ekki við um íbúa í Fossvogs- og Bústaðarhverfi. Fossvogslaug mun breyta því. Reykjavík og Kópavogur hafa mikinn metnað til að byggja þessa sundlaug með grænum áherslum, bæði í uppbyggingu og í rekstri og er stefnan að útfæra hana þannig að hún muni þjóna gangandi og hjólandi afar vel. Framundan er metnaðarfull hönnunarsamkeppni sem við hlökkum öll til að sjá niðurstöðuna úr.“

Umræðan

Fleiri fréttir

Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs

Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 og var valið kynnt við hátíðlega viðhöfn í Tónhæð, húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs.  Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og formaður lista- og menningarráðs, afhenti

Brugðist við vopnaburði barna og ungmenna

Flýta á innleiðingu forvarnarverkefnis í KópavogiTala opinskátt um ofbeldi í öllum grunnskólum, frístund og félagsmiðstöðvum barna Menntaráð Kópavogs fjallaði um viðbrögð og forvarnir vegna ofbeldis og vopnaburðar barna og ungmenna

Heitar umræður um merki Pírata

Á aðalfundi Pírata í Kópavogi um liðna helgi var ný stjórn félagsins kjörin. Fundurinn var haldinn samhliða aðalfundum Pírata í Reykjavík, Ungra Pírata og Pírata í Suðvesturkjördæmi líkt og í

Gatnaframkvæmdir hafnar í Vatnsendahvarfi

Framkvæmdir við jarðvinnu og lagnir í Vatnsendahvarfi eru hafnar. Til að halda upp á áfangann tók bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir fyrstu skóflustungu að götunni Hæðarhvarfi. Árni Geir Eyþórsson, framkvæmdastjóri Jarðvals

Gamlar fréttir úr sarpinum

Ármann
Geir Ólafsson
gymheilsa.is-11-660×240
1d43e201-4cd7-4596-a99e-154fc72e4256
Yndisgarður
Screenshot-2022-02-12-at-10.53.45
sundlaugardot
hundalestur
Rauði krossinn