• 2006
  • 2007
  • 2008
  • 2009
  • 2010
  • 2011
  • 2012
  • 2013
  • 2014
  • 2015
  • 2016
  • 2017
  • 2018
  • 2019
  • 2020
  • Home
  • Latest News
  • Ljósmyndir
  • Smáauglýsingar
  • Tölublöð
  • Um Kópavogsblaðið
Kópavogsblaðið
  • Heim
  • Fréttir
    • Mannlíf
    • Íþróttir
    • Menning
    • Fyrirtæki
  • Aðsent
  • Um Kópavogsblaðið
  • Tölublöð
  • Facebook

  • Instagram

  • YouTube

  • RSS

Fréttir

Nýtt húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs

Nýtt húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs
Auðun Georg Ólafsson
06/03/2020

Ný kennsluaðstaða Skólahljómsveitar Kópavogs var vígð við hátíðlega athöfn í byrjun febrúar. Nýtt húsnæði hljómsveitarinnar er nýbyggð álma við Álfhólsskóla, Digranesi, með kennslustofum, geymslurýmum og skrifstofu skólans ásamt æfingasal fyrir hljómsveitarstarfið. Þetta er fyrsta sérhannaða húsnæði fyrir skólahljómsveit sem tekið er í notkun á landinu.

Nýtt húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs er nýbyggð álma við Álfhólsskóla, Digranesi.
Um er að ræða fyrsta sérhannaða húsnæði fyrir skólahljómsveit sem tekið er í notkun á landinu.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson sýndi lipra takta við trommusettið. Við athöfnina tók hljómsveit kennara lagið og fengu þau bæjarstjóra Kópavogs til liðs við sig í Bítlalaginu Hey Jude og Áslaugu Eiríksdóttur, formann foreldrafélags Skólahljómsveitarinnar,

„Með húsnæðinu rætist langþráður draumur um varanlegt og sérhannað húsnæði fyrir hljómsveitina sem hefur starfað í Kópavogi í rúmlega hálfa öld, vonandi verður byggingin lyftistöng fyrir það góða starf sem Skólahljómsveit Kópavogs er þekkt fyrir,“ sagði Össur Geirsson skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs við tækifærið.

Vandað hefur verið til verka við hina nýju byggingu og leitast við að hafa þar eins góða hljóðvist og mögulegt er fyrir tónlistarkennslu.

Órjúfanlegur hluti menningarlífsins

Skólahljómsveit Kópavogs hefur verið starfrækt frá árinu 1967 og því ríflega hálfrar aldar gömul. Fjöldi nemenda frá upphafi skiptir upphafi þúsundum og margir tónlistarmenn stigið sín fyrstu skref í hljómsveitinni. Í dag eru um 200 nemendur í hljómsveitinni og 16 kennarar, flestir í hlutastarfi.

„Skólahljómsveit Kópavogs hefur verið órjúfanlegur hluti menningarlífs í Kópavogi í áratugi og hljómsveitin mikilvægur hluti í tónlistaruppeldi barna í bænum. Svo ég vitni í verðlaunahöfundinn Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur þá er Skólahjómsveit Kópavogs besta uppeldisstofnun sem völ er á og allir foreldrar ættu að senda börnin sín í hana. Þessi orð segja allt um hljómsveitina og það ómetanlega starf sem starfsfólk undir stjórn Össurar og forvera hans hafa unnið. Við í bæjarstjórn Kópavogs erum afar stolt af því að búa hljómsveitinni svona góða umgjörð,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs við vígsluna.

Við athöfnina tók hljómsveit kennara lagið og fengu þau bæjarstjóra Kópavogs til liðs við sig í Bítlalaginu Hey Jude og Áslaugu Eiríksdóttur, formann foreldrafélags Skólahljómsveitarinnar, sem flutti ávarp fyrir hönd foreldra nemenda í Skólahljómsveit Kópavogs.

Össur Geirsson skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri og Áslaug Eiríksdóttir, formaður foreldrafélags Skólahljómsveitar Kópavogs.
Frá æfingabúðum C-sveitar fyrr á árinu.
Efnisorðefst á baugiskólahljómsveit kópavogs
Fréttir
06/03/2020
Auðun Georg Ólafsson @audungeorg

Auðun Georg Ólafsson er ritstjóri Kópavogsblaðsins

Efnisorðefst á baugiskólahljómsveit kópavogs

Meira

  • Lesa meira
    Kópavogsbúar virkir í málefnum ungmenna

    Tveir ungir Kópavogsbúar voru nýverið kjörnir fyrir hönd Molans, ungmennahúss Kópavogs, í Ungmennaráð ungmennahúsa Samfés. Hlutverk ráðsins...

    ritstjorn 26/01/2021
  • Lesa meira
    Tendrað á jólastjörnu

    Tendrað var á jólastjörnunni á Hálsatorgi á alþjóðlegum degi barna, 20. nóvember s.l. Tendrað var á jólatré...

    ritstjorn 08/12/2020
  • Lesa meira
    Miðbær Kópavogs tekur stakkaskiptum

    550 íbúðir verða á Hamraborgarsvæðinu samkvæmt fyrirliggjandi tillögu að breyttu aðalskipulagi og deiliskipulagi sem samþykkt hafa verið...

    ritstjorn 02/12/2020
  • Lesa meira
    64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi

    Samningur um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis í Boðaþingi var samþykktur í Bæjarstjórn Kópavogs þann 24. nóvember s.l,...

    ritstjorn 26/11/2020
  • Lesa meira
    Geðræktarhús í Kópavogi

    Í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdagsins, 10. október s.l, kynnti Kópavogsbær að Hressingarhælið í Kópavogi verði nýtt í...

    ritstjorn 22/10/2020
  • Lesa meira
    Leiðarljós að viðhalda óskertu skólastarfi

    Áhrif Covid á leik- og grunnskóla í Kópavogi í haust eru af ýmsum toga. Áhersla er lögð...

    ritstjorn 22/10/2020
  • Lesa meira
    Kópavogsbær í samstarf við íþróttafélög um námskeið fyrir eldri borgara

    Nýju verkefni, Virkni og vellíðan, verður hleypt formlega af stokkunum á morgun, 1.október, en það er hluti...

    ritstjorn 30/09/2020
  • Lesa meira
    „Verkefni allra í HK er að koma félaginu í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu“

    Knattspyrnudeild HK hefur gert samning við Daða Rafnsson sem yfirmann knattspyrnuþróunar hjá félaginu. Daði mun taka að...

    ritstjorn 25/09/2020
  • Lesa meira
    Birkifræjum sáð í landi Kópavogs

    Kópavogsbær er einn samstarfsaðila Skógræktarinnar og Landgræðslunnar í landssöfnun á birkifræjum sem hleypt var af stokkunum 16....

    ritstjorn 24/09/2020
  • Lesa meira
    Kópavogsbær yfir OECD meðaltali við innleiðingu Heimsmarkmiðanna

    Frammistaða Kópavogsbæjar er vel yfir meðaltali Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, hvað varðar stöðu innleiðingar margra Heimsmarkmiða Sameinuðu...

    ritstjorn 24/09/2020
  • Lesa meira
    Fyrirtæki í Kópavogi innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

    Ellefu fyrirtæki í Kópavogi hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um innleiðingu  Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun inn...

    ritstjorn 24/09/2020
  • Lesa meira
    Íbúar Glaðheima ánægðir með hverfið

    Staðsetning og nálægð við þjónustu skipti miklu máli þegar íbúar í Glaðheimum í Kópavogi tóku ákvörðun um...

    ritstjorn 17/09/2020
Scroll for more
Tap
  • Vinsælast í vikunni

  • Nýjast

  • Atvinnu- og nýsköpun í Kópavogi
    Aðsent26/11/2020
  • Það er allt í lagi að vera ekki allt í lagi
    Aðsent26/01/2021
  • 64 rýma hjúkrunarheimili í Boðaþingi
    Fréttir26/11/2020
  • Auðun Georg Ólafsson
    Hamraborg 2.0
    Aðsent26/11/2020
  • Kópavogsbúar virkir í málefnum ungmenna
    Fréttir26/01/2021
  • Listasprengja í Kópavogi 2021
    Á döfinni26/01/2021
  • 1819 opnar Torgið
    Fyrirtæki26/01/2021
  • Það er allt í lagi að vera ekki allt í lagi
    Aðsent26/01/2021

Facebook

Kópavogsblaðið
Kópavogsblaðið vill stuðla að aukinni samheldni og samstöðu Kópavogsbúa. Við höfum sérstakan áhuga á skemmtilegu mannlífi og atvinnulífi í Kópavogi og því sem gerir Kópavog að sérstökum og jákvæðum bæ að búa í, starfa og heimsækja. Hafðu samband í síma 8993024 eða sendu okkur skeyti á kopavogsbladid () kopavogsbladid.is

Nýjasta nýtt

  • Kópavogsbúar virkir í málefnum ungmenna
    Fréttir26/01/2021
  • Listasprengja í Kópavogi 2021
    Á döfinni26/01/2021
  • 1819 opnar Torgið
    Fyrirtæki26/01/2021
  • Það er allt í lagi að vera ekki allt í lagi
    Aðsent26/01/2021

Facebook

© 2020 Kópavogsblaðið slf.