Aðsent:
Á mörgum heimilum er það til siðs að börnin taki saman lista yfir það sem þau óska sér í jólagjöf. Þau vona að einhver hinna 13 jólasveina finni óskalistann og uppfylli svo sem eina ósk. Ég er kominn af barnsaldri fyrir nokkru og hélt í ár upp á 70 ára afmælið eins og bæjarfélagið okkar. Sem jafnaldri bæjarins og afmælisbarn leyfi ég mér að taka saman óskalista fyrir jólin. Ég beini honum ekki til jólasveina heldur til bæjarstjórnar Kópavogs. Ég veit að bæjarstjórnin telur ekki þrettán, heldur aðeins ellefu. Ég vona nú samt að einhver þeirra ellefu lesi minn jólaóskalista. Þetta eru 11 óskir. Ein fyrir hvern bæjarfulltrúa?
- Leggja skipulagið fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur til hliðar og virða rétt íbúa þar til friðarsællar búsetu og fatlaðra til aðgengis að heimilum sínum.
- Vinna mannvænt rammaskipulag fyrir gamla miðbæ Kópavogs sem veit íbúum meira vægi en fjárfestum og setji sól, birtu og skjól í öndvegi.
- Bjarga söguríkustu byggingu Kópavogs, gamla félagsheimilinu, úr klóm fjárfesta sem hyggjast brjóta það niður og koma í veg fyrir að mikilvægum hluta af sögu Kópavogs sé varpað á bál græðginnar.
- Hugleiða vel hvort skynsamlegt sé að leggja stofnstíg fyrir reiðhjól fast við vinsælan og eintakan útivistarstíg við suðurströnd Kársness; og hvort ekki megi finna aðra leið fyrir vaxandi hjólaumferð.
- Gera gamla hressingarhælið við Kópavogstún að hressandi „Kópavogshúsi“; gleðifylltan griðastað fyrir bæjarbúa, til varðveislu á sögu bæjarins og til fræðslu um náttúru vogsins sem bærinn er kenndur við.
- Reisa menningarmiðstöð í efri byggðum Kópavogs sem með tímanum geri okkur Kópavogsbúa jafn stolt og glöð og menningarhúsin við Borgarholtið.
- Gróðursetja fleiri tré á grænsvæði bæjarins til að bæta loftgæði, veita skjól fyrir vindi og umferðarnið, og til yndisauka fyrir bæjarbúa.
- Ganga til samninga við Garðabæ og Reykjavík um aðild að Heiðmörk og leggja til varanlegrar verndar land Kópavogs austan við Guðmundarlund og Vatnsendahlíð.
- Endurreisa bátaskýlið við enda Sunnubrautar og gera að áhugaverðum áningarstað með upplýsingum um merkan kafla í sögu þessa bæjarhluta.
- Láta þarfir og réttindi barna og fatlaðra vega þyngra en lækkun fasteignagjalda við gerð fjárhagsáætlunar Kópavogs.
- Reisa upplýst úti-skautasvell yfir vetrarmánuðina í efri byggðum bæjarins og í Kópavogsdal.
Ég vona að bæjarfulltrúar rekist a þennan óskalista og hugleiði. Hver uppfyllt ósk mun gera Kópavog mannvænni og skemmtilegri bæ að búa í.







