Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar 322 milljónir

KopavogurRekstrarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 322 milljónir króna á fyrri hluta árs 2016. Gert hafði verið ráð fyrir tapi upp á 37 milljónir króna. Ástæða mismunarins er einkum að skatttekjur eru heldur hærri en reiknað var með og að bókuð er tekjufærsla vegna lóðaúthlutana, sem ekki var á áætlun.

Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kópavogs fyrir 1. janúar til 30. júní 2016 sem lagður var fram í bæjarráði í dag, 8. september.

„Reksturinn gengur vel og er í samræmi við áætlanir. Það gengur hraðar að lækka skuldahlutfall en áætlanir gerðu ráð fyrir og við erum því bjartsýn á framhaldið. En það má benda á að við höfum verið í stöðugu efnahagsumhverfi og það eru vísbendingar um að verðbólgan kunni að hækka sem myndi bitna á bæjarsjóði eins og landsmönnum öllum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Þess má geta að á fyrri helmingi árs falla um 48-49% af skatttekjum ársins en hins vegar stærri hluti útgjalda hjá ákveðnum sviðum. Samkvæmt uppgjörinu hafa heildarskuldir samstæðu bæjarins lækkað nettó frá áramótum um 234 milljónir þrátt fyrir að verðtryggð lán hafi hækkað á fyrri árshelmingi vegna verðbólgu og að lífeyrisskuldbindingar hafi hækkað um 195 milljónir króna.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 2.391 milljónir króna. Þetta þýðir að framlegðarhlutfall samstæðu var um 18%, en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu 15-20%.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar