Umsóknir um byggingarleyfi rafvæddar

Nýtt kerfi sem heldur utan um umsóknir um byggingarleyfi í Kópavogi, OneLand Roboot, var opnað formlega þriðjudaginn 24.september. Með tilkomu kerfisins geta umsækjendur nú alfarið athafnað sig með rafrænum hætti þegar sótt er um byggingarleyfi. 

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Stefán Ómar Jónsson verkefnastjóri, Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi Kópavogs, Ingimar Arndal frá One System ehf.

OneLand Roboot er hluti af One-stjórnsýslukerfi Kópavogsbæjar. UT deild Kópavogsbæjar í samvinnu við umhverfissvið og embætti byggingarfulltrúa hefur haldið utan um þróun kerfisins í samstarfi við fyrirtækið One Systems ehf.

Með tilkomu nýs kerfis þurfa aðilar að baki umsókn um byggingarleyfi, svo sem hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar ekki að koma í afgreiðslu byggingarfulltrúa í Kópavogi með pappíra og skjöl heldur geta sinnt erindum sínum rafrænt.

OneLand Roboot er enn eitt skrefið í rafvæðingu stjórnsýslu Kópavogs sem unnið hefur verið að undanfarin ár. Með þessari nýjung hafa um 55 þjónustuleiðir verið rafvæddar.

NÁNAR:

Hönnuður eða eigandinn sjálfur sem ætla að senda inn umsókn um byggingarleyfi, fara inn á Þjónustugátt Kópavogs í gegnum vef Kópavogsbæjar, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og senda umsókn inn með rafrænum hætti.

Umsóknir ásamt teikningum er hægt að senda beint af starfsstöð hönnuða til bæjarins, tilnefningar um hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara á verk og staðfesting þessara aðila um að taka að sér verkið, fer alfarið fram með rafrænum hætti.

Þannig þurfa þessir fagaðilar ekki að koma á starfsstöð byggingarfulltrúa til þess að uppfylla og staðfesta starfsskyldur sína, þeir einfaldlega opna símann sinn eða tölvuna þar sem þeir eru staddir hverju sinni og ganga frá öllum tilnefningum og staðfestingum með rafrænum hætti.

Yfirferð teikninga og samskipti vegna þeirra við hönnuði verður með rafrænum hætti og að endingu þegar teikning uppfyllir öll skilyrði verður hún undirrituð af byggingarfulltrúa og starfsmönnum hans með rafrænum hætti. 

Úttektir geta byggingarstjórar og eða starfsmenn byggingarfulltrúa gert í gegnum app sem er beintengt við OneLand Roobot kerfi Kópavogs. Að úttekt lokinni er hún send inn í málið, allt með rafrænum hætti.

Lykilaðilar að baki hverri umsókn um byggingarleyfi, það er  hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar hafa svo greinargott yfirlit yfir athafnir sínar og aðkomu að umsókninni á sinni þjónustugátt hjá Kópavogsbæ.

Myndband um rafrænt byggingarferli má nálgast hér:

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

nyjalinan
GIG1
Unknown-1-copy-2
Birkir-Jon-Jonsson
Bæjarstjórn Kópavogs
kaka
14352021_1468778826472049_2786611848971614432_o-690×315-1
Elisabet
Íþróttafólk Kópavogs