Rekstur Kópavogsbæjar – hin hliðin

Kópavogsbær hefur verið rekinn með halla síðustu ár og lánsfjárþörf hefur verið mikil. Bærinn fær ítrekað bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga af því að Kópavogsbær uppfyllir ekki fjárhagsleg lágmarksviðmið. Um þetta fjallar bæjarstjóri Kópavogs ekki í fréttatilkynningum, greinaskrifum og glærukynningum. Henni verður hins vegar tíðrætt um aðhald og ábyrgan rekstur. Í síðustu viku lagði hún fram fjárhagsáætlun fyrir árin 2025-2028; fjárhagsáætlun sem aldrei var rædd eða borin undir minnihlutann í bæjarráði, bæjarráði sem á þó lögum samkvæmt að bera ábyrgð á áætluninni. Vinnubrögðin eru slík að minnihlutaflokkarnir geta enga ábyrgð axlað á þeim fremur en fjölmörgu öðru undir hennar stjórn.

Bæjarstjórinn tók við góðu búi í upphafi kjörtímabils. Skuldaviðmið bæjarins hafði t.d. lækkað úr 175% í 95% á árunum 2014-2022. Sá mikli árangur náðist fyrir samtakamátt allra flokka. Þvert á pólitískar línur urðu allir flokkar sammála um góða stjórnarhætti, sameiginlega ábyrgð og eðlileg viðmið í rekstri bæjarins. Undir nýjum bæjarstjóra hefur samstaðan rofnað og minnihlutinn er sniðgenginn. Skuldaviðmiðið hækkar hratt á ný.

Það kostar 80 milljónir að fá 1,5 milljarð að láni í sex mánuði

Veltufjárhlutfall (hlutfall skammtímaskulda og lausafjár) er áætlað 0,46 fyrir árið 2025 sem er langt fyrir neðan ásættanleg mörk og með því lægsta hjá sveitarfélögum. Á mannamáli þýðir þetta að skammtímaskuldir eru yfirleitt um helmingi hærri en lausafé. Undanfarna 12 mánuði hafa því verið tekin skammtímalán, 1,5 milljarður fyrir ári, 1 milljarður í febrúar, 1,5 milljarður í október og nú er upplýst að þörf sé á enn einu skammtímaláni í lok árs. Þar fyrir utan fengust 2,5 milljarðar í maí sl. með útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki til 31 árs, KOP 24 1. Sem dæmi um kostnað af lántökum má taka lánið í október, 1,5 milljarð til sex mánaða. Það kostar bæjarsjóð um 80 milljónir. Bara í vexti á hálfu ári.

13 milljarðar teknir að láni með gjalddaga eftir fjögur ár

Meirihluti Sjálfstæðiflokks og Framsóknar hyggst nú spenna bogann enn hærra með enn meiri lántöku. Áætlanir þeirra gera ráð fyrir því að á árunum 2025-2027 verði tekin ný lán upp á 13 milljarða. Erfitt er að sjá hver þróun afborgana lána verður til lengri tíma þar sem lánin verða með gjalddaga eftir árið 2028. Ekkert yfirlit liggur fyrir um stöðu og þróun afborgana lána og vaxtakostnaðar til lengri tíma, þ.e eftir 2028. Ekki er hægt að gera sér grein fyrir hvert stefnir í samspili heildarfjárfestinga og afborgana lána og fjármagnskostnaðar annars vegar og markmiða um veltufé frá rekstri hins vegar.

Ný stúka byggð þrátt fyrir mikla fjárfestingaþörf í grunnþjónustu

Bærinn þarf að sinna skylduverkefnum sínum og í byggingu eru grunnskóli, leikskólar, sambýli o.fl. Undirbúningur flestra þessara verkefna hófst á síðustu kjörtímabilum. Viðhaldsþörf mannvirkja bæjarins er gríðarleg og enn er verið að vinna upp mikla viðhaldsskuld frá árinu 2008. Það á bæði við um fasteignir bæjarins og innviði. Óvissa er líka um niðurstöðu í nýjum Vatnsendadómi, máli sem Kópavogsbær tapaði í héraði og bíður nú niðurstöðu Landsréttar. Milljarða kostnaður gæti hlotist af alveg eins og af mistökum við uppbyggingu nýs Kársnesskóla.

Þótt fyrirsjáanlegt sé að langtímaskuldir muni hækka umtalsvert og þrátt fyrir viðvarandi erfiða lausafjárstöðu hyggst bæjarstjórinn hefja byggingu nýrrar stúku og íþróttamannvirkja fyrir HK í Kórnum. Bæjarstjórinn áætlar að verja tveimur milljörðum til stúkunnar á næstu þremur árum en engar áætlanir liggja fyrir um hver heildarframkvæmdin eða heildarkostnaðurinn verður. Fulltrúar minnihlutans óskuðu eftir að byrjað yrði á að leggja mat á þann kostnað og notkunarmöguleika í stað þess að úthluta 800 milljónum á árinu 2025 til byggingarinnar án þess að hafa plan til að styðjast við. Því var hafnað. Það er óþægilegt við meðferð málsins að bæjarstjóri fór þá fyrst í leyfi frá störfum sínum í aðalstjórn HK þegar hún hellti sér út í kosningabaráttu.

Þegar fjárhagsáætlun var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn lagði minnihlutinn til að byggingu HK stúkunnar yrði frestað. Engin tillaga er um að hverfa frá endurbótum á íþróttasvæði HK, bara að eiga umræðu og velja bestu leiðina. Það er ótækt að kasta sér til sunds í svona stóru verkefni án þess að skipuleggja það og reikna, teikna, kostnaðarmeta og áfangaskipta. Til að taka upplýsta ákvörðun þarf líka að vita hver rekstrarkostnaður bæjarins verður til framtíðar af þessum nýju mannvirkjum.

Hluta milljónanna 800 sem verja á til þessa á næsta ári má svo sannarlega nýta í mikilvæg skylduverkefni, og jafnvel mætti hugsa sér að draga aðeins úr lántökunum. Því miður eigum við ekki von á að þessi tillaga hljóti umræðu eða brautargengi fremur en aðrar tillögur okkar í minnihlutanum. Það er ekkert aðhald í rekstri bæjarins þótt bæjarstjórinn haldi því fram. Rekstrargjöld og annar rekstrarkostnaður höfðu hækkað talsvert umfram verðlagsþróun síðast þegar að var gáð og fjárfestingaáætlun hefur aldrei verið hærri. Aðhaldskröfur er ekki að finna í nýrri fjárhagsáætlun.

Við vitum að bæjarstjóri sýnir í glærusýningum sínum ekki þá mynd sem hér er dregin fram. Þetta eru samt mikilvægar staðreyndir og framlag minnihlutans til að upplýsa bæjarbúa um gegndarlausan yfirdráttarrekstur bæjarins enda eru það þeir sem greiða fjármagnskostnaðinn. Þessar upplýsingar fær fólk ekki frá meirihlutanum og samstarfsflokkurinn veitir bæjarstjóra ekki minnsta aðhald heldur fylgir henni í blindni. Þeirra ábyrgð er mikil.

Umræðan

Fleiri fréttir

Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin við hátíðlega athöfn kl. 17. Jólasveinar bregða á

Fjárhagsáætlun samþykkt

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu í vikunni Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026-2028. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að

Sóley heimsmeistari

Sóley Margrét Jónsdóttir varð í síðustu viku heims­meist­ari í kraft­lyft­ing­um með búnaði í +84 kg flokki og tryggði sér um leið réttinn til að keppa á Heimsleikunum (World Games) sem

Hættum keðjuverkandi skerðingum

Ég verð bara að segja eins og er að ég var kominn með bullandi ofnæmi fyrir ríkisstjórninni og sennilega var ríkisstjórnin einnig kominn með alvarlegt bráðaofnæmi fyrir sjálfri sér. Já,