Auglýsing

Samningur um áframhaldandi rekstur á áfangaheimili við Dalbrekku

Natalie T.N.Antonsdóttir forstöðumaður, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Rannveig María skrifstofustjóri félagslegs húsnæðis.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar skrifuðu undir samning um áframhaldandi rekstur á áfangaheimili við Dalbrekku í Kópavogi, miðvikudaginn 21. janúar.

Áfangaheimilið tók til starfa í loks árs 2017 og geta alls átta karlar verið þar í búsetu.

Dalbrekka er hugsað sem tímabundið heimili þar sem íbúar fá einstaklingsmiðaða þjónustu sem felur í sér stuðning, leiðsögn, kennslu og eftirfylgd til að ástunda edrúmennsku, byggja upp bata, koma á rútínu í daglegu lífi og efla færni og getu til að takast á verkefni hvers dags. Langtíma markmiðið er að íbúar tileinki sér heilbrigðari lífsstíl, öðlist færni til sjálfstæðrar búsetu og auki færni sína til þátttöku í venjubundnu lífi með virkni, launuðu starfi eða námi.

Samráð og samstarf er viðhaft um málefni íbúa og hefur félagsráðgjafi velferðarsviðs reglubundna viðveru á heimilinu.

Samstarf Kópavogsbæjar við Samhjálp hefur verið farsælt og árangursríkt.

Nýr samningur gildir til ársloka 2027.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,