Í dag fór fram karatehluti Reykjavik International Games (RIG) í Víkinni, íþróttahúsi Víkings í Stjörnugróf. Fyrir hádegi var keppt í fullorðinsflokkum en í unglingaflokkum eftir hádegi. Þrír erlendir keppendur mættu í morgun og sýndu góð tilþrif.
Í kata karla voru einungis íslenskir keppendur að þessu sinni og sigraði Íslandsmeistarinn Elías Snorrason, KFR, Heiðar Benediktsson, Breiðablik, í skemmtilegri viðureign en þeir áttust einnig við á síðasta Íslandsmóti þar sem Elías bar einnig sigurorð af Heiðari. Í kata kvenna voru landsliðkonur okkar mættar ásamt Ashley Scott frá Bretlandi, sem keppti bæði í kata og kumite í dag. Í undanúrslitum sigraði Svana Katla Þorsteinsdóttir, Breiðablik, liðsfélaga sinn Aðalheiði Rósu Harðardóttur. Í hinum undanúrslitaviðureigninni mættust Kristín Magnúsdóttir, Breiðablik, og Ashley Scott þar sem Kristín sigraði. Í úrslitum mættust því Svana Katla og Kristín og sigraði Svana Katla eftir að hafa sýnt góða kata í dag.
Í kumite -75kg flokki var Corentin Seguy, Frakklandi, meðal keppanda og sýndi hann mjög snarpa takta þegar hann lagði þá Sindra Pétursson, Víking, og Arnar Frey Nikulásson, Breiðablik, í undanriðlum. Í úrslitum mætti Corentin Elíasi Guðna Guðnasyni, Fylki, en Corentin vann nokkuð örugglega þann bardaga og flokkinn í heild sinni. Í þyngri flokknum, +75kg flokki, var Lonni Boulesnane meðal keppanda, en hann lagði Guðna Hrafn Pétursson, Fylki, og Hjálmar Þór Jensson, Fylki, á leið sinni í úrslit, báða nokkuð örugglega. Í úrslitum mætti hann Pétri Rafn Bryde, Víking, og var það mjög skemmtileg viðureign þar sem Pétur stóð vel í Lonni. En keppnisreynsla Lonni reyndist sterkari á endanum og sigraði hann flokkinn, en þess má geta að Lonni lenti í 2.sæti á Opna franska meistaramótinu núna í janúar. Í kumite kvenna sigraði Ashley Scott Aðalheiði Rósu Harðardóttur, Breiðablik, í undanúrslitum og mætti því Telmu Rut Frímannsdóttur, aftureldingu, í úrslitum. Sú viðureign var mjög fjörug þar sem Ashley stóð uppi sem sigurvegari.
Hér eru svo heildarúrslit í fullorðinsflokkum.
Kata senior kvenna
1 Svana Katla Þorsteinsdóttir Breiðablik
2 Kristín Magnúsdóttir Breiðablik
3 Ashley Scott Bretland
3 Aðalheiður Rósa Harðardóttir Breiðablik
Kumite senior kvenna
1 Ashley Scott Bretland
2 Telma Rut Frímannsdóttir Afturelding
3 Aðalheiður Rósa Harðardóttir Breiðablik
3 Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir KFR
Kata senior karla
1 Elías Snorrason KFR
2 Heiðar Benediktsson Breiðablik
3 Davíð Freyr Guðjónsson Breiðablik
3 Sverrir Magnússon KFR
Kumite senior -75 karla
1 Corentin Seguy Frakkland
2 Elías Guðni Guðnason Fylkir
3 Sindri Pétursson Víkingur
3 Davíð Freyr Guðjónsson Breiðablik
Kumite senior +75 karla
1 Lonni Boulesnane Frakkland
2 Pétur R Bryde Víkingur
3 Hjálmar Þór Jensen Fylkir
3 Jóhannes Gauti Óttarsson Fylkir
Eftir hádegi fór svo fram keppni í unglingaflokkum, þar sem keppt var í þremur aldursflokkum, 12-13 ára, 14-15 ára og svo 16-17 ára, bæði var keppt í kata og kumite. Hér má svo sjá helstu úrslit í þeim flokkum;
Flokkur Sigurvegari Félag
Youth kvk kata Mary Jane Padua Víkingur
Youth kk kata Viktor Steinn Sighvatsson Fjölnir
Cadett kvk kata Arna Katrín Kristinsdóttir Breiðablik
Cadett kk kata Kári Haraldsson Afturelding
Junior kvk kata Katrín Kristinsdóttir Breiðablik
Junior kk kata Bogi Benediktsson Þórshamar
Youth kvk kumite -50kg Iveta Ivanova Fylkir
Youth kvk kumite +50kg Mary Jane Padua Víkingur
Youth kk kumite -55kg Viktor Steinn Sighvatsson Fjölnir
Youth kk kumite +55kg Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson Fylkir
Cadet kvk kumite -54kg Edda Kristín Óttarsdóttir Fylkir
Cadet kvk kumite +54kg Katrín Ingunn Björnsdóttir Fylkir
cadet kk kumite Þorsteinn Freygarðsson Fylkir
Junior kvk kumite +59kg Unnur Lilja Þórðardóttir KFR
Junior kk kumite -76kg Ólafur Engilbert Árnason Fylkir
Junior kk kumite +76kg Eiríkur Örn Róbertsson Þórshamar