Skuldir lækka hjá Kópavogsbæ

Vaxtaberandi skuldir bæjarins lækka um 917 milljónir.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar, A og B hluta, var jákvæð um 158 milljónir króna en hlutfallslega dreifð áætlun ársins gerði ráð fyrir rekstrarhalla að upphæð 49 milljónir króna í árshlutareikningi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Þar segir einnig að vaxtaberandi skuldir bæjarins lækka um 917 milljónir, þar af eru langtímaskuldir 616 milljónir. Heildarskuldir lækka um 46 milljónir en stór hluti þeirra eru lífeyrisskuldbindingar bæjarins.

Skýring mismunar á áætlun og niðurstöðu rekstrarniðurstöðu samstæðunnar er einkum sú að verðbólga er lægri en reiknað var með. Skatttekjur tímabilsins eru þó heldur lægri en reiknað var með.

Þetta kemur fram í óendurskoðuðum og ókönnuðum árshlutareikningi Kópavogs fyrir 1. janúar til 30. júní 2019 sem lagður hefur verið fram í bæjarráði Kópavogs.

„Það er ánægjulegt að skuldir lækki en þó eru ýmis teikn á lofti um erfiðari kringumstæður í efnahagslífinu sem bitna mun á rekstri sveitarfélaga. Við munum því áfram leggja áherslu á aðhald í rekstri Kópavogsbæjar og mun þess sjá merki í fjárhagsáætlun næsta árs,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogi.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 2,36 milljarða króna sem þýðir að framlegðarhlutfall samstæður þannig reiknað var um 16,5% en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfall sé á bilinu 15-20%.

Þess má geta að á fyrri helmingi árs falla um 48%-49% af skatttekjum ársins en hins vegar stærri hluti útgjalda á ákveðnum sviðum.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar