
bæjarfulltrúi og formaður skipulagsráðs. Ljósmyndari : Aldís Pálsdóttir
Eftir sex ára deiliskipulagsferli var nú í sumar samþykkt ný 150 íbúða byggð í stað iðnaðarhúsnæðis við Kársneshöfnina. Byggðin er lágreist með tveggja til þriggja hæða húsum og nokkrum inndregnum fjórðu hæðum.
Á reitnum eru nokkrar fasteignir og lóðir sem hafa verið í eigu Kópavogsbæjar, Hjálparsveit skáta í Kópavogi og fyrirtækisins Vinarbyggð. Kópavogsbær keypti fasteignir skátanna eftir nokkra ára samningaviðræður en ljóst var að sveitin þurfti meira pláss og munu nýjar höfuðstöðvar Hjálparsveitarinnar rísa í efri byggðum Kópavogs. Á síðasta ári seldi Vinabyggð sínar lóðir til Fjallasólar. Þar með voru einungis tveir eigendur á þeim fasteignum og lóðum á reitnum; Kópavogsbær og Fjallasól.


1,5 milljarður króna
Meginreglan hjá Kópavogsbæ er að lóðir til sölu eru auglýstar og markmiðið ávallt að fá hámarksverð fyrir hverja lóð. Minnihlutinn í bæjarstjórn hefur gagnrýnt sölu á hluta lóða til Fjallasólar án auglýsingar. Hér þarf hins vegar að horfa á heildarmyndina. Á reit 13 er skipulagið þannig að sameiginlegur bílakjallari, sem mun liggja undir íbúðarbyggðinni, tengir lóðirnar að hluta saman ásamt nokkrum íbúðum ofanjarðar. Þá þarf að skerða fyrrum skátalóðina vegna legu borgarlínunnar sem mun liggja þar í gegn. Það var því nánast ómögulegt og mjög óhagstætt fyrir Kópavog að bjóða út lóðina. Með samningi við Fjallasól náði Kópavogsbær hins vegar að fá markaðsverð fyrir lóðirnar en til grundvallar var kaupsamningur Vinabyggðar við Fjallasól. Að auki greiðir Fjallasól ákveðið byggingaréttargjald, gjald sem er hærra en áður hefur verið samið um. Enn á Kópavogur lóð á reitnum sem ekki er hluti af sameiginlegum bílakjallara og verður sú lóð að sjálfsögðu auglýst til sölu.
Með þessari leið voru hagsmunir Kópavogsbæjar hafðir í fyrirrúmi. Samningurinn sem hljóðar upp á 1.5 milljarð króna, tryggir ekki einungis markaðsverð fyrir lóðirnar heldur einnig þátttöku byggingaraðilar við uppbyggingu innviða á svæðinu og þar á meðal er Kópavogshöfnin.
Nú þegar samkomulag er höfn við uppbyggingaraðila á reit 13 er næsta skref að hefja deiliskipulagsvinnu tengt hafnarsvæðinu. Samkvæmt aðalskipulagi er markmiðið, að höfnin verði geðprýðishöfn/yndishöfn með blandaðri notkun íbúða, verslunar og þjónustu. Umhverfi hafnarinnar á að vera fallegt og aðlaðandi með skemmtilegum göngu- og hjólastígum allt í kring. Samkvæmt aðalskipulagi er jafnframt gert ráð fyrir stækkun smábátahafnarinnar sem býður upp á marga spennandi möguleika. Aðstaða seglskúta og annarra smábáta mun eflast, möguleikar á ferðatengdri þjónustu opnast og þar mætti sjá fyrir sér t.d. kaffihúsi, aðstöðu til sjóbaða og afslöppunar. Þessi hönnunarvinna er ekki hafin en vonir standa til að hægt sé að hefja hana fljótlega og þá í samvinnu við íbúa og það verður vel auglýst þegar þar að kemur.