Stofutónleikar í tónlistarbænum Kópavogi 8. og 9. maí

Kópavogsbúum býðst að fá tónlistarfólk heim í stofu föstudaginn 8. og laugardaginn 9. maí. Stofutónleikarnir eru hluti af hátíðarhöldum í tilefni 60 ára afmælis bæjarins en lista- og menningarráð Kópavogs býður bæjarbúum upp á stutta og til stórskemmtilega tónleika afmælishelgina.

„Ég efndi til stofutónleika síðasta haust og það tókst afar vel til. Það myndast mikil nánd milli tónlistarmanna og tónleikagesta á tónleikum í heimahúsum sem skilar sér í frábærri upplifun. Þessir tónleikar eru fyrirtaks upphitun fyrir stórtónleika bæjarins í Kórnum 10. maí,“ segir Björn Thoroddsen skipuleggjandi tónleikanna.

Þeir listamenn sem halda munu stofutónleika ásamt Birni eru eru Bee Bee (Brynhildur Oddsdóttir) Snorri Helga og KK,  Kristján Kristjánsson. Áhugasamir eru hvattir til að senda inn tónleikaósk á netfangið btmusicehf@gmail.com. Tónleikarnir eru húsráðanda alveg að kostnaðarlausu.

„Ég hvet fólk til að sækja um, ég spilaði í íbúðum og húsum af ýmsu tagi síðast, það er engin stofa of lítil eða of stór fyrir svona uppákomu,“ segir Björn.

Áætlaður spilatími á hverjum stað um 20 mínútur. Fyrstu tónleikarnir hefjast klukkan átta og verða síðan á heila og hálfa tímanum. Síðustu tónleikunum lýkur klukkan 22.30.

Þeir sem vilja bjóða gestum heim og upplifa magnaða tónleika heima í stofu þurfa einungis að senda inn tónleikaósk fyrir 26. apríl. Í umsókninni þarf að tilgreina nafn, heimilisfang, heimilisfang, símanúmer og hvort óskað er eftir tónleikum 8. Eða 9. maí. Stjórnendur áskilja sér rétt á stýra því hvar hver listamaður treður upp.

Ef fleiri umsóknir um stofutónleika berast en fjöldi tónleika þá verður valið úr umsóknum meðal annars með það í huga að dreifa þeim um bæinn.

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

Bjarni Sigurbjörnsson
file-3
Sesselja Friðriksdóttir  úr félagsmiðstöðinni Kjarninn, heillaði alla með söng sínum og bar sigur úr býti.
201Smari
Gunnarsholmi_svaedid_1[78]
lk_newlogolarge
Willum Þór Þórsson, skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Theodora
teamgym