Styrktarsjóður Önnu K. Nordal styrkir Herdísi Mjöll

Hans Júlíus Þórðarson, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, Magnús Ragnarsson og Aino Freyja Järvelä.

Fiðluneminn Herdís Mjöll Guðmundsdóttir hlaut í vor, eina milljón króna styrk úr Styrktarsjóði Önnu K. Nordal. Styrkurinn var afhentur við formlega athöfn í Salnum í Kópavogi.

Dómnefnd sjóðsins, skipuð Magnúsi Ragnarssyni, Gyðu Stephensen, Hildigunni Halldórsdóttur og Páli Palomares, völdu umsókn Herdísar úr hópi sjö mjög hæfra umsækjenda.

Herdís hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun þrátt fyrir ungan aldur, meðal annars vann hún konsertkeppni Oberlin Conservatory 2020 og Kaufmannverðlaunin fyrir framúrskarandi fiðlunema við útskrift úr Oberlin Conservatory 2021. Herdís lýkur um þessar mundir meistaranámi frá Yale School of Music. 

Herdís Mjöll Guðmundsdóttir

Um Styrktarsjóð Önnu K. Nordal

Sjóðurinn var stofnaður af vestur-íslenskri konu, Önnu Karólínu Nordal sem fæddist í Kanada árið 1902 og lést 1998.  Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega söng- og fiðlunema. Anna bjó alla tíð í Kanada og kom aldrei til Íslands en hafði sterkar taugar til landsins og sýndi Íslendingum mikla ræktarsemi. Hún nam tónlist í St. Mary´s Academy, kaþólskum nunnuskóla í Winnipeg auk þess sem hún lagði stund á píanó- og orgelleik í Saskatoon, en hún var um tíma organleikari í báðum íslenskum kirkjunum í Gimli.  

Sjóðurinn hefur styrkt fjölda framúrskarandi tónlistarmanna. Meðal þeirra má nefna Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Gissur Pál Gissurarson, Bjarna Frímann Bjarnason og Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur.

Stjórn Styrktarsjóðs Önnu K. Nordal skipa Magnús Ragnarsson, Hans Júlíus Þórðarson og Aino Freyja Jarvela.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar