Auglýsing

Sumardagurinn fyrsti

Frá sumardeginum fyrsta í fyrra. Mynd: kopavogur.is
Frá sumardeginum fyrsta í fyrra. Mynd: kopavogur.is

Hátíðarhöld í tilefni sumardagsins fyrsta verða að venju í Kópavogi. Dagskráin hefst með skátamessu í Digraneskirkju. Þá verður skrúðganga og fjölskylduskemmtun í Fífunni auk þess sem klifurveggur og hoppukastalar standa gestum til boða. Skátafélagið Kópar sér um dagskrána.

Skátarnir leiða skrúðgönguna sem hefst við Digraneskirkju en lýkur í Fífunni. Þar verða ýmis skemmtiatriði og mikið fjör. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri ávarpar gesti, leikhópurinn Lotta kíkir í heimsókn, Tara Sóley sigurvegari söngkeppni íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs stígur á svið, Höskuldur Þór Jónsson og Margrét Hörn Jóhannsdóttir sem keppa til úrslita í Ísland got talent dansa fyrir gesti og jójómeistarinn Páll Valdimar úr Ísland got talent mætir á staðinn. Þá verður klifurveggur á staðnum og hoppukastalar.

Dagskráin í Kópavogi verður sem hér segir á sumardaginn fyrsta 24. apríl.

11.00: Skátamessa í Digraneskirkju.

13.30: Skrúðganga frá Digraneskirkju í Fífuna.

14.00-16.00: Fjölskylduskemmtun í Fífunni.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,

Eldri fréttir úr safni Kópavogsblaðsins

Úrval greina frá 2013-2023