Umsóknir um styrki úr afrekssjóði

Íþróttaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr afrekssjóði ráðsins. Tilgangur sjóðsins er að veita afreksíþróttafólki í Kópavogi styrk til að æfa eða keppa. Umsóknum skal skila fyrir 30. nóvember 2013. Stjórn sjóðsins er skipuð fulltrúum íþróttaráðs og metur hún umsóknir. Síðast var veitt úr sjóðnum árið 2010 en nú á að endurvekja hann aftur, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

3. flokkur blikastúlkna fagna Bikarmeistaratitli í einni kös. Afreksstúlkur, allar sem ein.
3. flokkur blikastúlkna fagna Bikarmeistaratitli í einni kös fyrr í sumar. Afreksstúlkur, allar sem ein. Mynd: breidablik.is

Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi:

a)      Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna  æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.

b)      Að veita afreksíþróttafólki í hópíþróttum í íþróttafélögum í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.

c)      Að veita afreksíþróttafólki  styrk sem á lögheimili í Kópavogi og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í Kópavogi.

d)      Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum jafnt kvenna sem karla.

Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóðinn fást í afgreiðslu á bæjarskrifstofum Kópavogs Fannborg 2, 1. hæð. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin ásamt reglugerð á vef bæjarins.

Umræðan

Fleiri fréttir

Ársreikningur staðfestur

Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti ársreikning ársins 2024 á fundi sínum 13.maí að lokinni síðari umræðu um ársreikninginn. Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10.apríl og vísað til fyrri umræðu í

Nýtt dómsmál í 70 ára afmælisgjöf

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi fór mikinn og fagnaði 4,5 milljarða króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu í ársreikningi bæjarins fyrir skemmstu og hældi sér af bestu niðurstöðu í heil 17 ár. Sú niðurstaða

Götuganga í sumarblíðu

Götuganga Virkni og vellíðan í Kópavogi fór fram mikilli veðurblíðu í dag. Gangan er nú haldin í þriðja sinn og tóku tæplega 300 þátt í göngunni sem hófst og lauk