Útskriftarnemendur LHÍ sýna verk sín í Kópavogi

Líkt og undanfarin ár fer útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands að hluta til fram í menningarhúsum Kópavogs, Gerðarsafni og Salnum í apríl og maí. Er þetta liður í samstarfi menningarhúsa bæjarins við LHÍ. Útskriftarsýning meistaranema í hönnun og myndlist fer fram í Gerðarsafni og tíu útskriftartónleikar nema úr tónlistardeild skólans fara fram í Salnum. Ókeypis er inn á alla þessa viðburði og eru allir velkomnir. Sýningin í Gerðarsafni verður opnuð laugardaginn 16. apríl og stendur yfir til 8. maí og fyrstu útskriftartónleikarnir í Salnum fara fram 29. apríl en þeir síðustu 22. maí.

uppsetning 1

Markmið bæjarins með samstarfinu við LHÍ er að efla menningarlífið í Kópavogi og styðja við bakið á ungu og efnilegu listafólki.

Á sýningunni í Gerðarsafni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi þar sem hönnuðir og myndlistarmenn hafa fengið tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum. Í Salnum eru tónleikar útskriftarnemanna af ýmsum toga. Flutt verða ný verk eftir tónsmíðanemendur, auk þess sem fram koma einsöngvarar og hljóðfæraleikarar. Þrettán nemendur leggja fram verk sín í hönnun eða myndlist. Þau eru: Ananda Serné, Anna Guidice, Anne Rombach, Claire Paugham, Eusun Pak, Inga María Brynjarsdóttir, Ma Pengbin, María Dalberg, Shui Yi, Sinéad Mccarron, Veronika Geig- er, Þórdís Jóhannesdóttir og Þröstur Valgarðsson. Sýningarstjóri er Daníel Björnsson. Flytjendur á tónleikunum í Salnum eru: Flóki Einarsson, tónsmíðar, Hekla Finnsdóttir, fiðla, Jón Gabríel Lorange og Kristinn Roach Gunnarsson, tónsmíðar, Þórarinn Guðnason, tónsmíðar, Daníel Helgason, tónsmíðar, Lilly Rebekka Steingrímsdóttir, flauta, Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, söngur, Lilja María Ásmundsdóttir, píanó, María Jónsdóttir, flauta og Stefán Ólafur Ólafsson klarinett.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar