Auglýsing

Ungir Sprettarar fóru í ævintýraferð

Ferðin var mikil upplifun fyrir unga Sprettara og reyndist bæði fræðandi og ótrúlega skemmtileg. Mynd: Sprettur.

Ungir Sprettarar fóru nýverið í ógleymanlega ferð á hina stórglæsilegu Sweden International Horse Show, sem haldin er ár hvert í Stokkhólmi í Svíþjóð. Samtals taldi hópurinn 44 Sprettara en þetta er í annað sinn sem Æskulýðsnefnd félagsins stendur fyrir slíkri ferð. Sýningin er ein sú glæsilegasta í Evrópu og dregur að sér bæði keppendur og áhorfendur hvaðanæva að. Þar er sýnt allt það besta sem hestaiðkun hefur upp á bjóða, hvort sem er mismunandi keppnisgreinar eða fjölbreytt sýningaratriði.

Áhorfendur fengu að njóta keppnisgreina á borð við hindrunarstökk, fimi og vagnakeppni á hæsta stigi auk fjölda sýningaratriða sem sýndu hæfileika mismunandi hestakynja – sem sum hver voru ótrúleg! Að sjálfsögðu lét íslenski hesturinn ekki sitt eftir liggja og var boðið upp á keppni í tölti sem vakti mikla athygli áhorfenda.

Ungir Sprettarar hafa undanfarið ár staðið í fjáröflunum til að gera ferðina að veruleika. Þar má nefna kleinusölu, dósasöfnun og vaktir í veitingasölu á viðburðum félagsins.

Það spilar stórt hlutverk í félagslegu starfi hestaíþróttarinnar að ungir knapar hafa sameiginlegt markmið til að stefna að og gera eitthvað saman í íþrótt sem er annars einstaklingsíþrótt – og það hefur verið að ósk ungra Sprettara að boðið sé upp á fleiri félagslega hittinga án hests svo þau hafi tækifæri til að efla tengslin sín á milli.

Ferðin var mikil upplifun fyrir unga Sprettara og reyndist bæði fræðandi og ótrúlega skemmtileg. Sýningin opnaði augu ungra Sprettara enn frekar fyrir fjölbreytileika hestamennskunnar á alþjóðavísu auk þess sem hún styrkti tengslin þeirra á milli, efldi sjálfstraust og félagslega hæfni þeirra.

Ungu Sprettararnir komu heim fullir innblásturs og gleði eftir að hafa upplifað einn stærsta og glæsilegasta hestaviðburð Evrópu saman.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,