Uppbygging hleðsluinnviða fyrir rafbíla

Fyrirhugaðar staðsetningar hleðslustöðva í Kópavogi.
Fyrirhugaðar staðsetningar hleðslustöðva í Kópavogi.

Kópavogsbær hefur undirritað samkomulag við Veitur um umfangsmikla uppbyggingu á hleðsluinnviðum fyrir rafbíla innan bæjarlandsins. Þetta framtak er hluti af víðtækari aðgerðaáætlun í loftslagsmálum höfuðborgarsvæðisins og er í samræmi við stefnu Kópavogsbæjar í loftslagsmálum um að draga úr kolefnislosun og stuðla að orkuskiptum í samgöngum.

„Í samstarfi við Veitur höfum við tekið skrefið í átt að markvissri uppbyggingu á hleðsluinnviðum fyrir rafbíla hér í Kópavogi. Með þessari aðgerð stóraukum við aðgengi að rafhleðslustæðum í Kópavogi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður rafveitu hjá Veitum, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Veitna við undirritun samkomulags um uppbyggingu hleðsluinnviða í Kópavogi.

Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður rafveitu hjá Veitum, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Veitna við undirritun samkomulags um uppbyggingu hleðsluinnviða í Kópavogi

Í tengslum við þetta samkomulag er stefnt á útboð á fjórtán lykilstaðsetningum innan sveitarfélagsins fyrir uppsetningu allt að 98 rafhleðslustæða. Þessari nýju innviðauppbyggingu er ætlað að mæta vaxandi þörf fyrir hleðslu rafbíla, þar sem eftirspurnin hefur aukist til muna á undanförnum árum.

„Samstarf Kópavogsbæjar og Veitna er liður í að ná markmiðum sveitarfélagsins í loftslagsmálum. Samkomulagið mun tryggja skilvirka og hagkvæma uppbyggingu hleðsluinnviða sem gagnast öllum íbúum.

Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur að vinna að uppbyggingu hleðsluinnviða í Kópavogi í góðri samvinnu við Kópavogsbæ, svo íbúar og aðrir geti með auðveldum hætti hlaðið rafbílana sína. Loftslagsmálin og orkuskiptin eru í forgangi hjá  okkur í Veitum og við vinnum stöðugt að því að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar,“ segir Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna.

Hleðslustöðvum er dreift um bæinn og er stefnt að því að hámarka aðgengi og hentugleika fyrir rafbílaeigendur.

Samstarfið við Veitur er upphafið að frekari aðgerðum í orkuskiptum og sjálfbærni í samgöngum. Kópavogsbær mun halda áfram að vinna að nýjungum og samstarfsverkefnum sem styðja við grænar samgöngur.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar