Auglýsing

Úthlutun úr Forvarnarsjóði Kópavogs

Við úthlutun var sérstök áhersla lögð á börn og ungmenni og verkefni sem hafa jákvæð áhrif á líðan, heilbrigði og framtíð þeirra.
Við úthlutun var sérstök áhersla lögð á börn og ungmenni og verkefni sem hafa jákvæð áhrif á líðan, heilbrigði og framtíð þeirra.

Forvarnarsjóður Kópavogs úthlutaði nýlega styrkjum til verkefna sem byggja á markmiðum sjóðsins um að efla forvarnir, heilsueflingu, og vellíðan barna og ungmenna í Kópavogi. Við úthlutun var sérstök áhersla lögð á börn og ungmenni og verkefni sem hafa jákvæð áhrif á líðan, heilbrigði og framtíð þeirra.

Eftirfarandi  verkefni fengu styrkveitingu:

  • Molavirkni – Molinn, miðstöð unga fólksins
    Markmið Molavirkni er að ná til barna og ungmenna á aldrinum 13-25 ára í Kópavogi, stuðla að félagslegri virkni og bættri líkamlegri og andlegri heilsu. Verkefnið styður við félagslega virkni, geðheilsu og heilsusamlegt líferni ungs fólks með áherslu á skipulagða viðburði, útivist og hreyfingu.
  • Fræðslukvöld fyrir foreldra leikskólabarna
    Haldið verður utan um sérstök fræðslukvöld fyrir foreldra í leikskólum Kópavogs með áherslu á forvarnir, heilsueflingu og aukna vellíðan barna.
  • Petra Paprika og innrásin
    Bækurnar um Petru Papriku sameina húmor og fróðleik um næringu og ónæmiskerfi til að efla orðaforða, næringarlæsi og samtöl barna og foreldra um heilbrigða næringu. Verkefnið styður jafnframt við læsisverkefnið Bókavog, lestrarátak sem hvetur börn til lesturs, eflir áhuga og þekkingu þeirra á bókum og byggir upp jákvæða lestrarmenningu í skóla- og frístundastarfi.
  • Aukið læsi barna og ungmenna – Félagsmiðstöðin Pegasus
    Verkefnið felur í sér fjölbreytt og aukið aðgengi að bókasafni í félagsmiðstöðvum og Molanum til að efla lestraráhuga og læsi barna og unglinga, sem unnið verður í samstarfi við verkefnið Bókavog.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,