Auglýsing

Vináttuganga gegn einelti

Nemendur leik- og grunnskóla í Kópavogi, starfsfólk skóla og frístundaheimila, taka þátt í Vináttugöngu sem fer fram á baráttudegi gegn einelti, þriðjudaginn 8. nóvember. Gangan fer nú fram í fjórða sinn og er sem fyrr dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna.

Gengið gegn einelti

Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni  leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.

Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni í fyrra og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.

Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hér:

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Vinstri græn og óháð bjóða fram lista

Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni